top of page
dsm_wix2.png

Don´t Stop Me - My Life with Bipolar Disorder 🎭
Read and listen to my ebook and audiobook for free and spread the word about mental health!
We should all help and support each other.
If you want the paperback, please contact me.

krk_hringbraut.jpeg

Rússíbanalífið mitt

Vitundarvakning um geðsjúkdóma - Gleði, erfiðleikar og fleira sem lífið hefur upp á að bjóða.

mania_17.jpg

Velkomin á heimasíðuna mína. Ég er 34 ára Kópavogsbúi í húð og hár, lýst sem félagslyndum einfara sem mér finnst frábær lýsing.

Þessi síða er aðallega ætluð til þess að berjast fyrir betri aðstöðu fólks með geðsjúkdóma, opna umræðuna, uppræta fordómum og fræða fólk almennt betur.

Ég greindist með geðhvörf árið 2009 og hef undanfarin níu árin stigið fram og barist fyrir sjálfan mig og einnig verið með annað fólk í svipaðri stöðu í huga; með því að tala opinskátt um þessi mál.

Geðheilbrigðiskerfið okkar er svakalega gallað og þarfnast róttækra breytinga.

Ég mun samhliða þessu vera með eitthvað aðeins út fyrir þetta efni á síðunni, enda leiðinlegt að vera of einhæfur.

bottom of page